Fáum okkur Huppu og söfnum fyrir Bryndísarhlíð

Kærleiksherferð Riddara Kærleikans árið 2026 hefst þann 15. júlí með sölu á KærleiksHuppu til söfnunar fyrir Bryndísarhlíð, úrræðis fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis.

Bryndísarhlíð verður fyrsta úrræði sinnar tegundar á Íslandi, þar sem börn fá lágþröskulda geðheilbrigðisþjónustu í öruggu og kærleiksríku umhverfi.

Hvernig styrki ég Bryndísarhlíð?

Þú getur lagt söfnuninni lið með kaupum á Kærleiksbragðaref eða Kærleiksís í öllum ísbúðum Huppu, eða með millifærslu eða Aur.

Ískaldur kærleikur Huppu og Riddara Kærleikans

Sumarherferð Riddara kærleikans í ár er unnin í samstarfi við ísbúðir Huppu. Markmið sumarsins er hvort tveggja áframhaldandi stuðningur við opnun Bryndísarhlíðar ásmt því að setja kærleika, samkennd og samtal á dagskrá.

Sýndu kærleik á samfélagsmiðlum

Taktu þátt og vertu Riddari kærleikans! Deildu mynd af þér með hjartatákni á samfélagsmiðlum, merktu hana með #riddararkærleikans og hvetjum saman fleiri til að dreifa kærleikanum!

Samstarfsaðilar